Undirritun samnings

Í dag var skrifað undir samstarfssamning sem leggur drög að stofnun svæðisgarðs á Snæfellsnesi. Svæðisgarðurinn verður eign allra Snæfellinga, en þeir aðilar sem hafa tekið að sér að leiða verkefnið og undirbúning eru sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi og félög sem eru samnefnarar í atvinnulífi á svæðinu; Ferðamálasamtök Snæfellsness, Snæfell - félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi, Búnaðarfélög Staðarsveitar, Eyja- og Miklaholtshrepps og Eyrarsveitar, ásamt SDS, Starfsmannafélagi Dala- og Snæfellsnessýslu. 

 

Áhugasamir aðilar um velferð Snæfellsness eru velkomnir í hópinn. 

Hvað er svæðisgarður?  Sjá hér.

Frumkvæði á Snæfellsnesi 

Snæfellingar ríða á vaðið með stofnun fyrsta svæðisgarðsins á Íslandi. Svæðisgarðar (á ensku regional parks) eru hins vegar þekktir víða í Evrópu sem mikilvæg stoð í atvinnu­uppbyggingu þar sem sérstaða og landkostir svæða hafa verið nýttir á markvissan hátt til að auka verðmætasköpun og fjölbreytni í atvinnulífi og til að styrkja byggð. 

Aðferðin byggir á hugmyndum um byggðaþróun og styrkingu “innan frá”, að frumkvæði heimamanna. Á svæði sem býr yfir einstökum landkostum og aðdráttarafli, líkt og Snæfellsnesið, getur svæðisgarður verið hreyfiafl fyrir þá sem vilja nýta sér gæði svæðisins og sérstöðu til uppbyggingar og aukinna verðmæta. 

Verkefnið nú

Uppbygging samstarfs og innviða svæðisgarðs er langtímaverkefni. Unnið verður markvisst að tilgreindum áföngum á þeirri vegferð næstu tvö árin og um þá áfanga er samið núna. Nýtt verður reynsla erlendis frá þar sem hvað best hefur tekist til við uppbyggingu svæðisgarða. 
Í þeirri vinnu sem nú fer af stað verður samfélagið virkjað til að greina sérstöðu svæðisins og þau tækifæri sem felast í nærtækum gæðum Snæfellsnessins til sjávar og sveita, í því skyni að styrkja stoðir undir fjölbreyttari atvinnusköpun og efla samfélagið. Litið verður til tækifæra sem tengjast hvers konar matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu, vöruhönnun og listsköpun, rannsóknum og fræðslu. Þessum upplýsingum verður síðan komið á framfæri á markvissan og aðgengilegan hátt. Leitað verður samstarfs við fjölmarga aðila, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök og lögð er áhersla á að nýta reynslu og upplýsingar um svæðið, sem fyrir liggur á mörgum, mismunandi sviðum.

Additional information