Samantekt um starf vinnuhópa

Í nóvember 2012 voru settir á fót vinnuhópar í tengslum við svæðisgarð á Snæfellsnesi, til að aðstoða svæðisskipulagsnefnd og stýrihóp svæðisgarðsverkefnisins við að draga fram sérkenni og auðlindir Snæfellsness, sögurnar sem þau segja, tækifærin sem búa í þeim og hvaða áherslur ætti að marka fyrir svæðið. 

Vinnuhóparnar voru þrír og í hverjum þeirra sátu 10-15 manns. Fyrir hópunum fóru fulltrúar úr svæðisskipulagsnefnd eða stýrihópi um svæðisgarð:

1.  Snæfellskur náttúruauður. Formaður: Gretar D. Pálsson, formaður svæðisskipulags­nefndar Snæfellsness

2.  Snæfellskur menningarauður.  Formaður: Ragnhildur Sigurðardóttir, varaformaður svæðisskipulagsnefndar.

3.  Snæfellskur þekkingarauður.  Formenn: Kristín Rós Jóhannesdóttir, fulltrúi í svæðisskipulagsnefnd og Kristín Björg Árnadóttir fulltrúi í stýrihópi um svæðisgarð.

Hér má lesa um starf vinnuhópanna en þeir funduðu þrisvar á tímabilinu nóvember 2012  til febrúar 2013. Þátttakendur í hópunum fá bestu þakkir fyrir sitt góða og mikla vinnuframlag.

Vefsjá svæðisgarðs Snæfellsness

Hluti þeirra korta sem hafa verið unnin í tengslum við svæðisskipulagsgerðina hafa verið sett fram í kortavefsjá til að auðvelda nýtingu þeirra og miðlun. Vefsjáin gefur yfirlit yfir sérkenni og sögu Snæfellsness og er mikilvægt verkfæri svæðisskipulagsnefndar við stefnumótun í svæðisskipulagi auk þess að verða áhrifarík aðferð við að miðla upplýsingum og stefnu svæðisskipulagsins þegar það verður tilbúið. Vefsjáin nýtist þá heimamönnum jafnt sem gestum við að sjá þau tækifæri sem í svæðinu búa. 

Kortin eru enn sem komið er sett fram sem drög og í þeim kunna að leynast villur eða ónógar upplýsingar. Ábendingar og athugasemdir má gjarnan senda á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. .

 

Unga fólkið og svæðisgarðurinn

Í byrjun febrúar hittist ungt fólk af Snæfellsnesi á kynningar- og spjallfundi í tengslum við svæðisgarð. Fundurinn var haldinn í Reykjavík og var ætlað að ná til þeirra sem þar dvelja við nám eða störf. 

Markmið fundarins var að fá fram skoðanir ungs fólks á því hvað gerir Snæfellsnesið sérstakt og heyra hvaða tækifæri það sæi í störfum og búsetu þar í framtíðinni. Hér má sjá samantekt af umræðum fundarins. 

Það sem þarna kom fram verður nýtt í vinnu við svæðisskipulag á Snæfellsnesi og frekari vinnu við mótun svæðisgarðs. Allar ábendingar og hugmyndir í tengslum við þetta eru vel þegnar í netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.    

Þátttakendum er þakkað kærlega fyrir þeirra framlag og skemmtilegar umræður. 

 

Veffundur með forsvarsmanni Valdres

“Við erum stoltari af Valdres, þekkjum betur fyrir hvað við stöndum, aðrir þekkja Valdres betur - Við áorkum meiru saman”

sagði Eivind Brenna, stjórnarformaður svæðisgarðsins í Valdres í Noregi og samtaka norskra svæðisgarða, á veffundi með stýrihópi svæðisgarðsins á Snæfellsnesi, þann 25. febrúar síðastliðinn. Á örfáum árum hafa Norðmenn stofnað 5 svæðisgarða og fjölmörg svæði eru nú í startholunum að fara sömu leið til að ýta undir verðmætasköpun og styrkja byggð. Eivind Brenna er reyndur sveitarstjórnarmaður af fylkis- og sveitarstjórnarstiginu.

Meira...

Hvar eru teknar myndir á Snæfellsnesi?

Það getur verið áhugavert að sjá hvar ferðafólk og heimamenn staldra við á Snæfellsnesi til að taka ljósmynd af því sem fyrir augu ber. Nú má sjá hér á vefnum kort af þeim stöðum þar sem hnitsettar myndir hafa verið teknar og merktar “Snæfellsnes”. Uppruni myndanna er á ljósmyndavefnum Flickr.

Á næstunni mun bætast hér við fleira efni sem safnast hefur um sérstöðu Snæfellsness. Nýttar verða vefsjár til að koma því á framfæri, ásamt með hefðbundnari leiðum.

Sjá kortið af myndatökustöðunum hér.

Additional information