Ungt fólk óskast í ungmennaráð
- Details
- 2013-05-22
Við könnum nú áhuga ungs fólks á að taka þátt í ungmennaráði svæðisgarðsins.
Ungmennaráð yrði vettvangur fyrir ungt fólk með rætur eða áhuga á Snæfellsnesi til að þróa og hrinda skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd, fræðast um atvinnulífið og menningu á svæðinu og efla tengslanet sitt.
Ávinningur þinn felst í að kynnast fleira fólki, ungu fólki og allskonar fólki í atvinnulífi á svæðinu (það heitir að efla tengslanetið sitt og þykir mikilvægt í dag) og að taka þátt í að hrinda skemmtilegum hugmyndum í framkvæmd - sem er síðan einnig undir þér komið hvernig til tekst!
Myndband um svæðisgarðinn
Hér er 10 mínútna myndband sem kynnir fyrirætlanir Snæfellinga:
Hvað er svæðisgarður?
Svæðisgarður er fjölþætt samstarf fyrirtækja, sveitarfélaga og félagasamtaka á svæði sem myndar samstæða landslags- og menningarlega heild.
Samstarfið byggist á sameiginlegri sýn um sérstöðu svæðisins og samtakamætti við að hagnýta sérstöðuna og vernda hana.
Erlendar fyrirmyndir
Svæðisgarðar eru til í mörgum löndum og eiga víða langa sögu, t.d. í Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Austurríki - og nú síðustu árin einnig í Sviss og Noregi. Allflestir eiga þeir það sammerkt, að frumkvæði að stofnun þeirra kemur frá heimamönnum og starfsemin er á þeirra forsendum.
Það sem við höfum kosið að nefna svæðisgarð, heitir t.d. regional park á ensku. Sjá nánar um erlend fordæmi hér.
Hvernig verður svæðisgarður til?
Íbúar, fyrirtæki og sveitarstjórnir á afmörkuðu svæði taka sig saman og skilgreina sérstöðu svæðisins og þau gæði sem þar er að finna. Síðan byggja aðilarnir samstarf sitt, um atvinnu- og samfélagsþróun, á þessari sérstöðu.
Iðulega hefur verið komið á umfangsmiklu samstarfi á öllum sviðum mannlífs, svo sem við skóla, fyrirtæki, hverskonar samtök og sveitarfélög.
Hvað fæst með svæðisgarði?
Við mótun svæðisgarðs eru sérstaða og gæði í náttúru og samfélagi dregin fram og skýrð. Afraksturinn er gerður aðgengilegur og settur fram á notadrjúgan hátt. Þá geta fyrirtæki sótt þangað efnivið í hugmyndir, kynningargögn og vöruþróun eða komið auga á tækifæri til samstarfs. Eftir að svæðisgarðurinn er tekinn til starfa verður hann vettvangur margvíslegs samstarfs og miðlunar á forsendum heimamanna og á grundvelli sérstöðu og landkosta. Með svæðisgarði verður þannig einn plús einn að þremur.

